Ísland taki sæti í mannréttindaráði SÞ

AFP

Samstaða hefur náðst í ríkjahópi Vesturlanda hjá Sameinuðu þjóðunum um að Ísland gefi kost á sér til að taka það sæti sem losnaði í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna við úrsögn Bandaríkjanna úr ráðinu nýverið. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins.

Gert er ráð fyrir að Ísland verði eitt í kjöri í aukakosningum til ráðsins sem haldnar verða í allsherjarþinginu í næsta mánuði. 

Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna hefur aðsetur í Genf. 47 ríki sitja í ráðinu, þar af tilheyra sjö hópi Vestur-Evrópu og annarra ríkja (WEOG). Fljótlega eftir að Bandaríkin sögðu sig úr ráðinu náðist samstaða innan hópsins um að Ísland gæfi kost á sér til að fylla sætið út tímabil Bandaríkjanna, til ársloka 2019. Ekki er búist við að önnur ríki bjóði sig fram í sérstökum aukakosningum sem haldnar verða í allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna um miðjan næsta mánuð. Einfaldan meirihluta atkvæða þarf til að ná kjöri.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segist sannfærð um að Ísland standi fyllilega undir þeirri ábyrgð sem fylgi því að taka sæti í ráðinu. „Ísland hefur getið sér gott orð fyrir framgöngu sína í mannréttindamálum, meðal annars höfum við beitt okkur fyrir jafnrétti kynjanna og réttindum hinsegin fólks svo eftir hefur verið tekið á alþjóðavísu,“ segir Katrín.

„Þrátt fyrir að hafa staðið utan mannréttindaráðsins hefur Ísland látið þar að sér kveða í krafti áheyrnaraðildar. Sjálfur hef ég ávarpað mannréttindaráðið í tvígang, fyrstur íslenskra utanríkisráðherra, síðast í vor þar sem ég áréttaði gagnrýni á stjórnvöld á Filippseyjum. Stuðningur vinaþjóða okkar við að Ísland taki sæti í ráðinu felur í sér viðurkenningu á okkar störfum þar hingað til,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra. 

Sigríður Andersen dómsmálaráðherra segir það tvímælalaust til marks um góða stöðu mannréttindamála hér á landi að Ísland njóti stuðnings Vesturlandahópsins til að taka sæti í ráðinu.

Engin útgjöld hafa fylgt framboði Íslands til mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna. Fari svo að Ísland fái sæti í ráðinu kemur það aðallega í hlut fastanefndar Íslands í Genf að sinna þeim verkefnum sem því fylgir. 

Hlutverk ráðsins er að efla og vernda mannréttindi í aðildarríkjum SÞ, fjalla um mannréttindabrot og beinir ráðið með ályktunum sínum tilmælum til einstakra ríkja um úrbætur í mannréttindamálum. 

Mannréttindaráðið fundar þrisvar á ári í föstum fundarlotum 3-4 vikur í senn. Þess utan kemur það saman til að ræða einstök brýn mannréttindamál. Þá fjallar ráðið um ástand mannréttinda í einstökum aðildarríkjum SÞ með svokallaðri allsherjarúttekt.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert