Veikur skipverji sóttur á haf út

Gæslan hefur þyrlu til taks.
Gæslan hefur þyrlu til taks. mbl.is/​Hari

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar fékk beiðni um aðstoð á tíunda tímanum í gær frá kanadískri skútu sem stödd var 155 sjómílur suðaustur af Höfn í Hornafirði en þar um borð var maður sem þurfti að komast undir læknishendur.

Skútan var stödd 115 sjómílur vestur af færeysku eyjunni Mykines og var ákveðið að færeysk björgunarþyrla héldi á staðinn, að því er segir í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.

Þyrlan var komin á vettvang um klukkustund síðar en vegna lélegs skyggnis og sjólags tókst ekki að hífa manninn um borð í þyrluna þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Skútan hélt því í átt til Hafnar í Hornafirði og áhöfn hennar óskaði eftir því að bátur héldi til móts við hana þar sem erfiðlega hafi gengið að koma manninum um borð í þyrlu.

Björgunarskipið Ingibjörg, á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar, hélt á ellefta tímanum í morgun til móts við skútuna og mun flytja manninn til Hafnar í Hornafirði. Mikil þoka er á svæðinu og er flugvöllurinn á Höfn lokaður.

Landhelgisgæslan mun áfram fylgjast með framvindu aðgerðanna í dag og hefur þyrlu til taks ef þokunni léttir. Áætlað er að björgunarskipið Ingibjörg verði komið að skútunni síðdegis, að því er Gæslan segir í tilkynningu. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert