Segja hækkanir ljósmæðra meiri en annarra

Árið 2008 fengu ljósmæður 16 prósent hækkun umfram önnur BHM-félög sem leiðréttingu vegna viðurkenningar á aukinni menntun. Frá þeim tíma hafa ljósmæður fengið sömu hækkanir og önnur BHM-félög. Þetta er meðal þess sem kemur fram yfirlýsingu á vef fjármála- og efnahagsráðuneytisins vegna fjölmiðlaumfjöllunar um kjör ljósmæðra.

Stöðugildi ljósmæðra og fjöldi fæddra, tímabilið 2007 – 2017. Fjöldi …
Stöðugildi ljósmæðra og fjöldi fæddra, tímabilið 2007 – 2017. Fjöldi fæðinga er meðalfjöldi fæðinga á mánuði og stöðugildi er meðalfjöldi stöðugilda á mánuði. Mynd/Stjórnarráð Íslands

Þar kemur einnig fram að meðaldagvinnulaun ljósmæðra miðað við fullt starf árið 2017 hafi verið 573 þúsund krónur á mánuði og meðalheildarlaun fyrir fullt starf hafi verið 848 þúsund krónur á mánuði.

Í yfirlýsingunni er tekið fram að ráðuneytið vilji vekja athygli á þessum upplýsingum.

Þar kemur einnig fram að á tímabilinu 2007 til 2017 hafi stöðugildum ljósmæðra hjá ríkinu á árinu fjölgað um 33 prósent en fæðingum á sama tíma fækkað um 8 prósent.

Þróun dagvinnulauna 2007-2017
Þróun dagvinnulauna 2007-2017 Mynd/Stjórnarráð Íslands

2017 störfuðu að meðaltali 252 ljósmæður hjá ríkinu í 172 stöðugildum, en meðalstarfshlutfall ljósmæðra hjá ríkinu árið 2017 var 69 prósent. Um 14% ljósmæðra eru í fullu starfi.

Þróun heildarlauna 2007-2017
Þróun heildarlauna 2007-2017

Að lokum er tekið fram að samninganefnd ríkisins hafi sem fyrr fullt umboð frá fjármálaráðherra og ríkisstjórn í samningaviðræðum við ljósmæður. Það sé einlægur vilji stjórnvalda að ljúka deilunni eins fljótt og kostur er.

Samanburður á meðallaunum BHM-félaga 2017:

Meðallaun BHM fyrir árið 2017

Dagvinnulaun

Heildarlaun

BHM

607.515

717.969

Félag prófessora við ríkisháskóla

845.350

929.014

Ljósmæðrafélag Íslands

573.019

848.224

Kjarafélag viðskipta- og hagfræðinga

665.881

834.880

Félag geislafræðinga

534.808

804.985

Dýralæknafélag Íslands

644.882

804.575

Félag lífeindafræðinga

529.648

790.451

Stéttarfélag lögfræðinga

650.892

785.413

Félag háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðsins.

659.241

777.805

Félag háskólakennara á Akureyri

615.105

727.320

Félag íslenskra félagsvísindamanna

624.557

723.082

Fræðagarður

577.722

670.295

Sálfræðingafélag Íslands

590.715

660.586

Félag íslenskra náttúrufræðinga

558.198

639.280

Stéttarfélag bókasafns- og upplýsingafræðinga

570.432

626.051

Félag háskólakennara

556.055

621.256

Stéttarfélag íslenskra félagsráðgjafa

560.413

618.087

Stéttarfélag sjúkraþjálfara

514.259

587.396

Leikarafélag Íslands

502.364

570.631

Þroskaþjálfafélag Íslands

479.912

570.323

Iðjuþjálfafélag Íslands

508.040

543.069

Yfirlýsinguna í heild sinn og samaburðartöfluna má nálgast á vef Stjórnarráðsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert