Viðhald á Hrollaugseyjum

Frá störfum starfsmanna Vegagerðarinnar.
Frá störfum starfsmanna Vegagerðarinnar. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Starfsmenn vitadeildar Vegagerðarinnar vinna nú að viðhaldi á vitanum á Hrollaugseyjum ásamt áhöfninni á varðskipinu Þór. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni en Gæslan flutti vinnuflokk frá Vegagerðinni út í eyjuna fyrr í vikunni ásamt verkfærum, málningu og öðrum búnaði sem notaður er til verksins.

Að auki verður skipt um rafgeyma í vitanum en hann er knúinn sólarorku eins og flestir vitar landsins. Mikil vinna er lögð í að koma búnaði til eyjarinnar en engar vélar eða önnur hjálpartæki eru til staðar til að auðvelda verkið. Því er unnið með handaflinu einu saman en áætlað er að vinna við vitann taki um fjóra til fimm daga. Á meðan framkvæmdirnar standa yfir dvelja starfsmenn Vegagerðarinnar um borð í varðskipinu Þór.

Frá Hrollaugseyjum.
Frá Hrollaugseyjum. Ljósmynd/Landhelgisgæslan
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert