Fundi lokið án niðurstöðu

Frá fundi samninganefnda ríkisins og ljósmæðra á fundi ríkissáttasemjara í …
Frá fundi samninganefnda ríkisins og ljósmæðra á fundi ríkissáttasemjara í morgun, 5. júlí. mbl.is/Hari
Fundi samninganefndar ríkisins og ljósmæðra hjá ríkissáttasemjara lauk án niðurstöðu klukkan 17. Fundurinn hófst klukkan 10 í morgun en hlé var gert á fundarhöldum um hádegi vegna gagntilboðs ljósmæðra.
Fundur hófst aftur klukkan 15 og stóð í tæpa tvo klukkutíma. Samningar tókust ekki og hefur næsti fundur í deilunni verið boðaður á miðvikudag klukkan 14. 
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert