„Stjórnsýslan dálítið lokuð“

Borgarstjórn Reykajvíkur að störfum.
Borgarstjórn Reykajvíkur að störfum. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Þetta er liður í því að opna stjórnsýsluna hjá Reykjavíkurborg. Hún er dálítið lokuð,“ sagði Eyþór Arnalds, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, um sameiginlega tillögu stjórnarandstöðuflokkanna sem rædd verður á borgarráðsfundi í dag.

Í henni er lagt til að dagskrá í ráðum og nefndum á vegum borgarinnar verði gerð aðgengileg á vef Reykjavíkurborgar fyrir fundi.

Í samtali við Morgunblaðið sagðist Eyþór vonast til að samstaða næðist um tillöguna með stjórnarflokkunum í Reykjavík enda hefðu þeir mikið talað um gagnsæi í málflutningi sínum.

Spurð um tillöguna sagðist Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, formaður borgarráðs, fagna tillögum um gagnsæi og sagði umræðu um slíkt tímabæra á Íslandi, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert