Minntust fórnarlambanna 77

Frá minningarathöfninni í dag.
Frá minningarathöfninni í dag. Ljósmynd/Ungir jafnaðarmenn

„Við skulum aldrei gleyma þeim 77 sem létu lífið, flest þeirra ungmenni í upphafi ævi sinnar, sem voru hrottalega myrt, eða særð ævilangt, né skulum við gleyma að þessi árás var tilraun til að ógna og grafa undan lýðræði og mannréttindum,“ sagði Inger Gerd Næss, fulltrúi sendiráðs Noregs á Íslandi, í ræðu við athöfn til minningar um þá sem létust í hryðjuverkunum í Útey á þessum degi árið 2011.

Ungir jafnaðarmenn stóðu fyrir athöfninni, sem fram fór við Norræna húsið, en samtökin hafa skipulagt minningarathöfn við minningarlundinn í Vatnsmýri síðustu sex ár.

Þórarinn Snorri Sigurgeirsson, formaður UJ, sagði í ræðu sinni við athöfnina að jafnaðarstefnan hefði alltaf mætt andstöðu og að reynt hefði verið að kæfa baráttu fyrir umbótum í fæðingu. Það væri þó merki um árangur jafnaðarmanna hve útbreiddar þessar hugmyndir eru í dag.

 „Við erum hér saman komin í dag til að minnast fórnarlamba þessarar árásar, og minnumst í leiðinni allra þeirra sem fallið hafa í baráttunni fyrir jafnaðarstefnunni. Við minnumst þeirra hér í dag, en heiðrum þau alla daga, með því að halda baráttunni áfram,“ sagði Þórarinn.

Ummerki árásarinnar enn sjáanleg

Nikólína Hildur Sveinsdóttir, alþjóðafulltrúi Ungra jafnaðarmanna, hefur tvisvar komið til Úteyjar á síðustu misserum og deildi hún reynslu sinni af komu sinni til eyjunnar.

Ljósmynd/Ungir jafnaðarmenn

„Hvert sem litið er má sjá ummerki árásarinnar, sem er erfitt en mikilvægt. Ummerkin halda minningunni og andanum á lífi. Ég verð aldrei nógu fær til að lýsa þeirri tilfinningu að vera í Útey, því tilfinningarnar eru blendnar. Aðdáun, sorg, gleði, reiði og þakklæti. Ég er þakklát fyrir að fá að heimsækja þennan merka stað og fá tækifæri til að miðla sögunni áfram. Ég er sorgmædd og reið yfir öllum þeim lífum sem var kastað á glæ vegna hugmyndafræði eins manns. Ég er glöð yfir því að Útey skuli enn geta verið griðastaður fyrir unga jafnaðarmenn í Noregi. Og ég dáist að meðlimum AUF og þeirra baráttu,“ sagði Nikólína.

„Árásin á unga jafnaðarmenn í Útey var árás öfgamanns á hugmyndafræði og árás á gildi samfélags okkar. Árásin var gegn hugsjónum um lýðræðislega þátttöku í stjórnmálum, en fyrst og fremst var þetta árás á hugsjónir um frjálst, opið og réttlátt samfélag. Ungir jafnaðarmenn eru stoltir af því að berjast fyrir þessum gildum, og heiðra minningu hinna föllnu með baráttu fyrir þeim,“ segir í tilkynningu Ungra jafnaðarmanna til fjölmiðla.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert