Þátttaka í bólusetningum óviðunandi

Þátttaka í bólusetningum hér á landi hjá yngstu árgöngunum hér …
Þátttaka í bólusetningum hér á landi hjá yngstu árgöngunum hér á landi er lakari en áður hefur verið. Thinkstock

Þátttaka í bólusetningum hér á landi hjá yngstu árgöngunum er lakari en áður hefur verið. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um þátttöku í almennum bólusetningum á Íslandi, sem sóttvarnalæknir hefur gefið út.

Er þátttakan 2017 sögð vera svipuð og árið áður, en minnki þátttakan enn frekar þá megi búast við að hér á landi fari að sjást sjúkdómar sem ekki hafa sést um árabil.

„Sérstaklega eru mislingar áhyggjuefni en þeir hafa nú geisað af krafti víða í Evrópu um nokkurra ára skeið. Mikil flugumferð um Ísland gerir það að verkum að sóttvarnalæknir fær reglulega spurnir af því að einstaklingur með smitandi mislinga hafi verið í flugvél með viðkomu á Íslandi,“ segir í frétt á vef Landlæknis. Meðgöngutími sjúkdómsins er um 10-14 dagar, en getur þó verið allt að 3 vikur.  „Með dvínandi þátttöku yngstu árganganna í bólusetningum er hætt við að faraldur geti komið upp ef smit berst inn á leikskóla hér á landi.“

Sóttvarnalæknir segir fremur sjaldgæft að bólusetningu sé hafnað hér á landi, mun algengara sé að skoðun í ung- og smábarnavernd falli niður af óljósum orsökum. „Á undanförnu ári hefur verið lagt í vinnu við að auðvelda heilsugæslustöðvum að fylgjast með stöðu mála hjá þeim börnum sem eru skráð á stöðina og gefur það tækifæri til að kalla inn börn sem ekki hafa mætt í skoðun. Frekari úrbætur eru í undirbúningi til að auðvelda skráningu og fleira.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert