Stal lyfjum á dvalarheimili

Morfínskyld lyf eru lyfseðilsskyld.
Morfínskyld lyf eru lyfseðilsskyld. mbl.is/Golli

Starfsmaður dvalarheimilis á Vesturlandi hefur hætt störfum eftir að upp komst að hann tók morfínskyld lyf, sem eru lyfseðilsskyld, ófrjálsri hendi. Málið hefur ekki komið inn á borð lögreglunnar á Vesturlandi. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag. 

Málið komst upp við reglubundið eftirlit í byrjun júlí. Maðurinn hefur viðurkennt brot sitt, að því er framkvæmdastjóri dvalarheimilisins segir í frétt Fréttablaðsins, og hefur það verið tilkynnt til embættis landlæknis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert