Hafa grafið 65% Dýrafjarðarganga

Horft að gangamunnanum í botni Arnarfjarðar, þar sem lagður er …
Horft að gangamunnanum í botni Arnarfjarðar, þar sem lagður er nýr vegur og byggðar tvær býr svo greið leið sé til og frá göngunum nýju. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Starfsmenn verktakafyrirtækjanna Suðurverks og Metrostav a.s. frá Tékklandi eru nú komnir um 3.400 metra inn í fjallið Arnarfjarðarmegin, sem er nærri 65% af heildarlengd ganganna.

Næsti punkturinn inni í göngunum er 3.700 metra inni í fjallinu og þangað á að ná fyrir lok september, en þá ætla bormenn verkáætlunum samkvæmt að færa sig um set og byrja gangagröft Dýrafjarðarmegin frá.

Þar er nú verið að útbúa vegi og aðstöðu en forskering er tilbúin svo að ekkert er að vanbúnaði til að þar megi byrja að sprengja sig inn í bergið. Alls verða göngin 5,3 kílómetra löng og verða tilbúin eftir tvö ár, að því er fram kemur í umfjöllun um gangnagerðina í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert