Krefjast réttlátara skattkerfis

Alþýðusamband Íslands krefur stjórnvöld um sanngjarnara skattkerfi. Hér má sjá …
Alþýðusamband Íslands krefur stjórnvöld um sanngjarnara skattkerfi. Hér má sjá Gylfa Arnbjörnsson, forseta ASÍ, á formannafundi sambandsins í febrúar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Alþýðusamband Íslands segir að kominn sé tími á að stjórnvöld sýni vilja sinn í verki og taki á því „augljósa óréttlæti“ sem felist í því að kaupmáttaraukning síðustu ára hafi síður skilað sér til lágtekjuhópa en annarra, vegna vaxandi skattbyrði þeirra.

Fyrir ári birti hagdeild ASÍ skýrslu um þróun á skattbyrði launafólks á síðastliðnum tveimur áratugum og voru niðurstöður skýrslunnar í meginatriðum þær að skattbyrði launafólks hefði aukist í öllum tekjuhópum á tímabilinu, en aukningin hefði verið langmest hjá þeim tekjulægstu.

„Þegar samspil tekjuskatts, útsvars og persónuafsláttar auk barna- og vaxtabóta er skoðað hefur munurinn á skattbyrði tekjulægstu hópanna og þeirra tekjuhærri minnkað og verulega dregið úr tekjujöfnunarhlutverki skattkerfisins. Þetta hefur einkum gerst vegna þess að skattleysismörk hafa ekki fylgt launaþróun á sama tíma og vaxta- og barnbætur, sem eru mikilvæg tekjujöfnunartæki, hafa verið vanræktar og markvisst dregið úr hlutverki þeirra við að jafna kjör,“ segir í tilkynningu sem ASÍ sendir frá sér í dag.

Stjórnvöld hafi tekið kjarabætur almennings

Þar segir jafnframt að stjórnvöld hafi, með áherslum sínum í skattamálum, unnið gegn áherslu verkalýðshreyfingarinnar á sérstaka hækkun lægstu launa í kjarasamningum og þannig tekið til sín stóran hluta þeirra kjarabóta sem samið hefur verið um.

„Það þarf því ekki að koma sérstaklega á óvart að krafa sé um endurskoðun á skattkerfinu innan verkalýðshreyfingarinnar,“ segir í tilkynningu ASÍ, sem segir stjórnmálamenn úr flestum flokkum hafa tekið undir af þróuninni í aðdraganda kosninga sl. haust og lýst vilja sínum til breytinga.

„Undanfarið ár hefur verkalýðshreyfingin ítrekað bent á að það sé grundvallaratriði að snúa þessari þróun við ef takast á að ná sátt á vinnumarkaði. Búið er að greina vandann, ræða hann og kryfja til mergjar. Tími aðgerða er runninn upp,“ segir ASÍ.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert