Banaslys í Steinsholtsá

mbl.is

Kona sem féll í Steinsholtsá við Þórsmörk í dag er látin. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi. 

Slysið varð um hálfþrjú­leytið í dag, en þar var til­kynnt um bíl í ánni. Er­lend hjón voru í bíln­um sem sat fast­ur eftir að hafa reynt að þvera ána. Maður­inn náði að koma sér úr bíln­um og á þurrt en kon­an féll í ána. Maðurinn var blautur og kaldur þegar björgunarlið kom á staðinn. Töluvert vatn var í ánni.

Hjónin voru flutt á slysadeild með þyrlu Landhelgisgæslunnar og var konan úrskurðuð látin þegar komið var á Landspítalann. 

Málið er til rannsóknar hjá lögreglunni á Suðurlandi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert