Lambakjöt til Kína

Kína flytur inn 125 þúsund tonn af lambakjöti á ári.
Kína flytur inn 125 þúsund tonn af lambakjöti á ári. mbl.is/Árni Torfason

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Ni Yuefeng, tollamálaráðherra Kína, undirrituðu nýja bókun við fríverslunarsamning Íslands og Kína um heilbrigðisvottun á íslensku lambakjöti síðdegis í gær, en utanríkisráðherra er í fjögurra daga heimsókn í Kína.

„Við erum búin að vera að bíða svolítið eftir þessu,“ segir Unnsteinn Snorri Snorrason, framkvæmdastjóri Landssamtaka sauðfjárbænda, í samtali við Morgunblaðið. „Kína er stærsti innflytjandi á lambakjöti þannig að þetta er gífurlega stór markaður sem opnast þarna,“ segir hann.

Að sögn Unnsteins hafa íslenskir sláturleyfishafar verið að horfa til markaðarins í Kína með útflutning á lambakjöti í huga og ekki síður sem markað fyrir hliðarafurðir svo sem innmat, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert