Riða greinist aftur í Skagafirði

mbl.is/Eggert

Riðuveiki hefur verið staðfest á bænum Vallanesi í Varmahlíð í Skagafirði. Síðast greindist riða á þessu svæði árið 2016 á bæjunum Brautarholti og Stóru-Gröf ytri. Matvælastofnun vinnur nú að öflun upplýsinga og undirbúningi aðgerða.

Fram kemur í tilkynningu frá MAST, að riðan hafi greinst í sýni úr kind frá bænum þar sem nú séu um 370 fjár.

„Sýnið var tekið samkvæmt skimunaráætlun Matvælastofnunar við slátrun í sláturhúsi. Átta önnur sláturhúsasýni frá búinu voru einnig rannsökuð í sömu sendingu og reyndust neikvæð. Ekki hafði orðið vart neinna sjúkdómseinkenna eða óeðlilegra affalla. Sýnin voru rannsökuð á Tilraunastöð Háskóla Íslands að Keldum. Mikill fjöldi sýna verður tekinn við komandi haustslátrun og rannsökuð með tilliti til skimunar á riðu,“ segir MAST.

Veikin greindist síðast á þessu búi árið 2007

Þá kemur fram, að búið sé í Húna- og Skagahólfi og í því hólfi hafi riðuveiki komið upp á tuttugu búum á undanförnum 20 árum en á þessu búi greindist veikin síðast árið 2007. Riðuveiki hefur komið upp á mörgum bæjum kringum Varmahlíð í gegnum tíðina og um þekkt riðusvæði er að ræða.

Ennfremur segir, að þetta sé fyrsta tilfelli riðuveiki sem greinist á árinu en í fyrra greindist eitt tilfelli á Norðurlandi eystra. Fram til ársins 2010 greindist riða á nokkrum bæjum á landinu á hverju ári en engin tilfelli hefðbundinnar riðu greindust á árunum 2011-2014.

Mega ekki sofna á verðinum

„Riðan er því á undanhaldi en þetta sýnir að ekki má sofna á verðinum. Á undanförnum árum hafa sýni verið tekin við slátrun úr u.þ.b. þrjú þúsund kindum á ári. Jafnframt hafa bændur verið hvattir til að senda hausa til Keldna af fé sem drepst eða er lógað heima vegna vanþrifa, slysa eða sjúkdóma, eða hafa samband við dýralækni um að taka sýni úr slíku fé. Aukin áhersla er á að fá slík sýni þar sem það eykur líkur á að finna riðuna.

Héraðsdýralæknir vinnur nú að öflun faraldsfræðilegra upplýsinga og úttektar á búinu til að meta umfang aðgerða við förgun fjár, þrif og sótthreinsun. Því næst fer málið í hefðbundið ferli hvað varðar gerð samnings um niðurskurð,“ segir MAST.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert