Bjarni víkur tímabundið af forstjórastóli

Bjarni Bjarnason, forstjóri OR, hefur ákveðið að stíga tímabundið til …
Bjarni Bjarnason, forstjóri OR, hefur ákveðið að stíga tímabundið til hliðar. Hér er Bjarni á stjórnarfundi í síðustu viku, ásamt Sólrúnu Kristjánsdóttur starfsmannastjóra (t.v.) og Brynhildi Davíðsdóttur stjórnarformanni (t.h.). mbl.is/Eggert

Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, hefur óskað eftir því við stjórnarformann Orkuveitu Reykjavíkur að stíga tímabundið til hliðar sem forstjóri á meðan þau mál sem „komið hafa upp“ verði skoðuð og úttekt gerð á vinnustaðarmenningu fyrirtækisins.

Bjarni segir að hann telji afar mikilvægt, bæði í þágu starfsmanna og almennings að sú skoðun fari fram og að hans ákvarðanir megi ekki vera undanskildar í þeirri úttekt.

Yfirlýsing þessa efnis var send fjölmiðlum rétt í þessu. Hana má lesa í heild sinni hér að neðan.

Yfirlýsing frá forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur

„Ég hef óskað eftir því við formann stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur að stíga tímabundið til hliðar sem forstjóri á meðan þau mál sem komið hafa upp verða skoðuð og úttekt gerð á vinnustaðarmenningu fyrirtækisins.

Ég tel afar mikilvægt bæði í þágu starfsmanna og almennings að sú skoðun fari fram. Þar mega mínar ákvarðanir ekki vera undanskildar. Því tel ég rétt að víkja tímabundið á meðan málið er skoðað.

Starfsfólk OR hefur lagt mikið á sig á síðustu árum við að byggja fyrirtækið upp á ný úr krappri stöðu. Sú vinna hefur ekki síst snúið að auknu jafnrétti kynjanna og bættri vinnustaðarmenningu. Áríðandi er að halda þeirri mikilvægu vinnu áfram.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert