Tafir á umferð vegna sjúkraflutninga

Tafir eru á umferð inn til Reykjavíkur og að Landspítalanum vegna sjúkraflutnings af landsbyggðinni. Lögreglan hefur lokað fyrir umferð inn á Miklubraut til þess að sjúkrabíll með sjúkling utan af landi komist sem fyrst á Landspítalann. 

Uppfært klukkan 9 

Búið er að opna fyrir umferð að Miklubraut og sjúkrabíllinn kominn á Landspítalann.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert