Óumflýjanlegt rask við spítalann

Hér sést hvar bílastæðin eru í dag.
Hér sést hvar bílastæðin eru í dag. Úr myndskeiði Landspítalans

Vegna framkvæmda við nýbyggingar Landspítala við Hringbraut verður óumflýjanlegt rask á svæðinu og munu sjúklingar, gestir og starfsfólk finna fyrir því. Allt kapp er hins vegar allt kapp lagt á að truflanir verði sem minnstar og að starfsemi og daglegt líf á spítalanum haldist í föstum skorðum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landspítalanum. Myndskeið fylgir með tilkynningunni þar sem Ásbjörn Jónsson, verkefnastjóri hjá NLSH ohf., fer yfir bílastæðamálin við spítalann.

Hér sést hvert bílastæðin muni færast.
Hér sést hvert bílastæðin muni færast. Úr myndskeiði Landspítalans

Þá segir, að helstu breytingar felist í bílastæðum sem muni flytjast til.

„Gömul stæði munu þannig lokast og ný verða opnuð. Í dag eru bílastæði við Hringbraut um 1.100 talsins en að framkvæmdatíma loknum verða þau um 2.000. Nú þegar hefur talsverðum fjölda af bílastæðum verið lokað og ný stæði opnuð við BSÍ. Bílastæði á framkvæmdatímanum verða að öllu samanlögðu fleiri en núna og aðgengi sjúklinga, gesta og starfsfólks gott.

Einnig verða breytingar á inngöngum á byggingartímabilinu. Þannig mun helsti inngangur sjúklinga og gesta færast frá aðalinngangi við Barónsstíg (Kringlunni) yfir að aðalinngangi við Eiríksgötu,“ segir í tilkynningu spítalans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert