WOW hættir flugi til þriggja áfangastaða

Áfangastaðirnir þrír eru teknir út í hagræðingarskyni.
Áfangastaðirnir þrír eru teknir út í hagræðingarskyni. mbl.is/WOW-air

WOW air mun ekki fljúga til Stokkhólms, Edinborgar og San Francisco yfir vetrarmánuðina og mun félagið aflýsa flugferðum frá 5. nóvember þangað til í byrjun apríl á næsta ári. Er þetta gert í hagræðingarskyni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flugfélaginu. 

„Eins og þegar hefur komið fram verður seinkun á afhendingu á tveimur glænýjum Airbus A330neo-vélum sem áttu að koma í nóvember en koma núna ekki fyrr en í lok febrúar. Fyrir vikið neyðist félagið til þess að gera breytingar á leiðarkerfi félagsins í vetur,“ segir í tilkynningunni.

Fram kemur að haft verði samband við alla farþega sem eiga í hlut, þeim boðin endurgreiðsla eða að gera breytingar á ferðahögun sinni án þess að greiða breytingargjald.

Alls flýgur WOW til 38 áfangastaða í Evrópu og Norður-Ameríku, en 6. desember hefst áætlunarflug til Indlands og 18. desember bætist Orlando við leiðarkerfið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert