Vitundarvakning vegna íslenskrar tungu

Sigrún Edda Eðvarðsdóttir, formaður Heimilis og skóla, Karl Björnsson, framkvæmdastjóri …
Sigrún Edda Eðvarðsdóttir, formaður Heimilis og skóla, Karl Björnsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga, Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Anna María Gunnarsdóttir, varaformaður Kennarasambands Íslands. Ljósmynd/Kennarasamband Íslands

„Íslenskan stendur á tímamótum og mikilvægt er að tryggja að íslensk tunga standi jafnfætis öðrum málum og sé notuð á öllum sviðum þjóðlífsins.“

Þetta er meðal þess sem kemur fram í viljayfirlýsingu um að staðið verði að vitundarvakningu um mikilvægi íslensks máls sem var undirrituð á Skólamálaþingi Kennarasambands Íslands sem fram fór í Veröld – húsi Vigdísar í dag þar sem fullt var út úr dyrum og fjölmargir fylgdust með á netinu. Yfirskrift Skólamálaþings var Íslenska er stórmál.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kennarasambandi Íslands.

Undir yfirlýsinguna rituðu Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, Anna María Gunnarsdóttir, varaformaður KÍ, Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, Karl Björnsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga, og Sigrún Edda Eðvarðsdóttir, formaður Heimilis og skóla.

Með viljayfirlýsingunni staðfesta þau vilja til að stuðla að virkri notkun íslenskunnar og vinna saman að jákvæðari viðhorfum barna og unglinga til íslenskrar tungu.

Yfirlýsingin er svohljóðandi:

Íslenska er stórmál

„Kennarasamband Íslands, forsætisráðuneyti, mennta- og menningarmálaráðuneyti, Háskóli Íslands, Samband íslenskra sveitarfélaga og Heimili og skóli staðfesta vilja til að standa að vitundarvakningu um mikilvægi íslensks máls. Ofangreindir aðilar munu leggja sig fram við að finna víðtækan samstarfsgrundvöll til að vekja athygli og áhuga á móðurmálinu, stuðla að virkri notkun þess og vinna sérstaklega að jákvæðari viðhorfum barna og unglinga til íslenskrar tungu.

Íslenskan stendur á tímamótum og mikilvægt er að tryggja að íslensk tunga standi jafnfætis öðrum málum og sé notuð á öllum sviðum þjóðlífsins. Á það bæði við um daglegt líf og sérhæfðari samskipti.“

Ljósmynd/Kennarasamband Íslands

Kennarar í lykilhlutverki

„Við hjá Kennarasambandi Íslands ákváðum að sýna frumkvæði og fá með okkur í lið þessa öflugu aðila til að standa að vitundarvakningu um íslenskuna. Kennarar eru í lykilhlutverki varðandi máltöku barna og það er samfélagsleg skylda okkar að standa vörð um móðurmálið og við bendum jafnframt á að mikilvægt er að auka framboð á vönduðu og fjölbreyttu náms- og kennsluefni á íslensku á öllum skólastigum. Við hlökkum til að taka þetta áfram og sérstaklega í ljósi þeirrar jákvæðni og þess áhuga sem ríkti á málþinginu í dag,“ sagði Anna María Gunnarsdóttir, varaformaður Kennarasambands Íslands, að því er kemur fram í tilkynningunni.

Katrín Jakobsdóttir bætti við: „Við þurfum að tryggja að íslenska verði áfram notuð á öllum sviðum samfélagsins. Til þess þurfum við að geta hugsað, starfað, leikið og skapað á íslensku. Við þurfum að geta verið fyndin, alvarleg, reið og sorgmædd á íslensku. Ég er bjartsýn af því að ég sé unga sem aldna nýta íslenska tungu í alls konar tilgangi, oft með nýjum og óvæntum hætti. Hins vegar er mikilvægt að stjórnvöld geri allt sem í þeirra valdi stendur til að hlúa að þessu verðmæti sem við eigum öll saman,“ sagði Katrín.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, sagði viljayfirlýsinguna efla samtakamáttinn. „Okkur er mikið í mun að auka meðvitund og áhuga á íslenskri tungu og að því vinnum við best í sameiningu. Við höfum greint frá fjölþættum aðgerðum stjórnvalda er miða einmitt að þessu en í þeim gegnir menntakerfið einkar mikilvægu hlutverki. Viljayfirlýsing sem þessi eykur samtakamáttinn, hann þurfum við til þess að snúa vörn í sókn fyrir íslenskuna,“ sagði Lilja Dögg.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert