Óvissan á Vestfjörðum óviðunandi

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Það óvissuástand sem skapast hefur á Vestfjörðum í kjölfar úrskurðar úrskurðarnefndar um umhverfis- og auðlindamál er með öllu óviðunandi. Hér verður að bregðast hratt við og svara því með hvaða hætti þeim sem í hlut eiga verði tryggður réttur til að láta reyna á stöðu sína gagnvart stjórnvöldum.“

Þetta segir Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra á Facebook-síðu sinni og bætir við að í þeim efnum séu ekki eingöngu hagsmunir einstaka rekstraraðila undir heldur alls samfélagsins fyrir vestan.

„Sömuleiðis þarf að tryggja að sanngjarnar reglur gildi um rétt til að bæta úr ágöllum í leyfisumsóknarferli, ef slíku er til að dreifa, í þessu máli og til frambúðar. Skýrar reglur, meðalhóf og sanngjarn málsmeðferðartími eru nokkrar af grunnreglum í því stjórnkerfi sem við viljum reka.“

Bjarni segir ekki að ástæðulausu að kveðið sé um mikilvægi þess að hraða málsmeðferð þar sem það sé hægt samkvæmt gildandi lögum, til dæmis með því að styrkja úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála, í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert