Samfylkingarfólk fundar

Guðrún Ögmundsdóttir á fundi Samfylkingarinnar í morgun.
Guðrún Ögmundsdóttir á fundi Samfylkingarinnar í morgun. mbl.is/Kristinn Magnússon

Flokksstjórnarfundur Samfylkingarinnar hófst á Hótel Reykjavík Natura í morgun. Hann er opinn öllum flokksfélögum og stuðningsmönnum. Einungis kjörnir fulltrúar í flokksstjórn hafa þó atkvæðisrétt á fundinum.

Fundurinn hófst klukkan níu á því að Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, sagði frá stöðunni í stjórnarskrármálinu. Í kjölfarið leiddi málefnahópur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar umræðum næstu skref.

Klukkan 11 hófst svo umræða um lausnir í húsnæðismálum með hagsmunaðilum og stjórnmálamönnum. 

Nú í hádeginu verður svo kynnt stefna, verklag og uppfærðar siðareglur flokksins í kjölfar átaksins Í skugga valdsins #metoo.

Fleiri dagskrárliði má sjá hér.

Fundinum lýkur svo á ræðu Loga formanns klukkan 15.30.

Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar.
Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar. mbl.is/Kristinn Magnússon
Í morgun var m.a. fjallað um húsnæðismarkaðinn á fundinum.
Í morgun var m.a. fjallað um húsnæðismarkaðinn á fundinum. mbl.is/Kristinn Magnússon
Flokkstjórnarfundur Samfylkingarinnar hófst í morgun.
Flokkstjórnarfundur Samfylkingarinnar hófst í morgun. mbl.is/Kristinn Magnússon
Frá flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar í morgun.
Frá flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar í morgun. mbl.is/Kristinn Magnússon
Flokksstjórnarfundurinn fer fram á Hótel Reykjavík Natura.
Flokksstjórnarfundurinn fer fram á Hótel Reykjavík Natura. mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert