330 milljóna framúrkeyrsla Félagsbústaða

Heildarkostnaður Félagsbústaða vegna framkvæmda við Írarbakka 2-16 reyndist vera 728 …
Heildarkostnaður Félagsbústaða vegna framkvæmda við Írarbakka 2-16 reyndist vera 728 milljónir kr. Ljósmynd/Aðsend

Ráðist verður í gagngerar endurbætur á starfsemi og innra eftirliti Félagsbústaða í kjölfar úttektar sem gerð var vegna umframkostnaðar við endurbætur á 53 íbúðum Félagsbústaða við Írabakka í Reykjavík. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem stjórn Félagsbústaða sendi frá sér.

Það var í  maí 2016 að stjórn og framkvæmdastjóri Félagsbústaða óskuðu eftir því við innri endurskoðun Reykjavíkurborgar að hún gerði úttekt á viðhaldsverkefni félagsins við Írabakka 2-16 á árunum 2012 -2016. Fyrir lá að ýmsar brotalamir höfðu verið á framkvæmd og skipulagi verkefnisins. 

Skýrsla innri endurskoðunar var svo nýlega kynnt fyrir stjórninni og komu þar fram „alvarlegar athugasemdir við stjórnhætti í tengslum við umrætt verkefni“. Í kjölfarið hafi framkvæmdastjóri Félagsbústaða ákveðið að segja starfi sínu lausu, „þrátt fyrir að undanfarin ár hafi stjórn félagins átt í góðu samstarfi við framkvæmdastjóra um margþættar úrbætur á rekstri félagsins“. Með þessu sé vonast til að „sátt skapist um rekstur félagsins og svigrúm til frekari endurbóta.“ 

Í úttektinni kom fram að á því fjögurra ára tímabili sem hún tók til samþykkti stjórn framkvæmdir fyrir 398 m.kr.  Árið 2012 var farið af stað með viðhaldsverkefni upp á 44 milljónir kr. til að skipta út gluggum, ofnum og tréverki á Írabakka 2-16. Fljótlega kom hins vegar í ljós að viðhaldsþörfin var mun meiri og því samþykkti stjórnin framkvæmdir fyrir 398 m.kr næstu fjögur árin.  

Heildarkostnaður Félagsbústaða vegna framkvæmdanna reyndist hins vegar að lokum 728 milljónir kr. sem er 330 milljón kr. umfram þær heimildir sem stjórnin veitti og felur í sér 83% framúrkeyrslu.

Sigrún Árnadóttir ráðin starfandi framkvæmdastjóri

Í yfirlýsingu stjórnar segir að úttektin hafi leitt í ljós að skerpa þurfi á verkferlum. Innri endurskoðun Reykjavíkur hafi sett fram margvíslegar ábendingar um hvernig bæta megi innra eftirlit Félagsbústaða. Telji stjórnin þær ábendingar gagnlegar og að vinna beri að úrbótum í samræmi við þær. 

Meðal ábendinganna er að  sækja beri formlega um viðbótarfjárheimildir til stjórnar áður en stofnað er til útgjalda þegar mikil frávik frá samþykktum áætlunum séu fyrirséð. Þá beri Félagsbústöðum að hlíta lögum um opinber innkaup og koma á innkaupaferli sem m.a. feli í sér að útboð fari fram þegar kostnaðaráætlun fer yfir viðmiðunarfjárhæðir.

Hefur Sigrún Árnadóttir, fyrrverandi bæjarstjóri í Sandgerði og áður framkvæmdastjóri Rauða kross Íslands, verið ráðin sem starfandi framkvæmdastjóri þar til nýr framkvæmdastjóri verður ráðinn í kjölfar auglýsingar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert