Mælti fyrir frumvarpi til stuðnings bókaútgáfu

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, mælti fyrir frumvarpi um stuðning við bókaútgáfu á Alþingi í gær. Frumvarpið er liður í heildstæðum aðgerðum stjórnvalda til stuðnings íslenskri tungu sem kynntar voru í haust.

Í frumvarpinu er lagt til að komið verði á fót nýju stuðningskerfi sem heimilar endurgreiðslu 25% beins kostnaðar vegna útgáfu bóka á íslensku. Tillagan kemur frá starfshópi á vegum fjármála- og efnahagsráðuneytisins sem fékk það hlutverk að fara yfir hugsanlegar leiðir að því markmiði og var niðurstaða starfshópsins sú að farin yrði stuðningsleið sem felur í sér endurgreiðslu á hlutfalli kostnaðar sem fellur til við útgáfu bóka að ákveðnum skilyrðum uppfylltum.

Í tilkynningu frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu er haft eftir Lilju að um tímamótaaðgerð sé að ræða. „Þessi tímamótaaðgerð er til þess fallin að auka framboð, fjölbreytni og sölu á íslenskum bókum til framtíðar. Ég bind vonir við að hún marki þáttaskil fyrir íslenskar bækur og muni hafa jákvæða keðjuverkun í för með sér, til hagsbóta fyrir lesendur, rithöfunda og alla þá er koma að útgáfu hér á landi,“ er haft eftir Lilju í tilkynningu.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert