Heiðveig rekin úr Sjómannafélaginu

Heiðveig María Einarsdóttir segir í færslu sinni að sig hafi …
Heiðveig María Einarsdóttir segir í færslu sinni að sig hafi ekki órað fyrir að hún yrði rekin úr Sjómannafélaginu. mbl.is/Eggert

Heiðveig María Einarsdóttir, sem til­kynnt hafði um fram­boð til for­manns Sjó­manna­fé­lags Íslands, hefur verið rekin úr félaginu. Frá þessu greinir Heiðveig á Facebook-síðu sinni nú í kvöld.

„Nú er ég endanlega orðlaus, ég vissi að þeir myndu ganga langt! En að reka mig úr félaginu er eitthvað sem mig hafði ekki getað órað fyrir að gæti gerst, að minnsta kosti ekki í okkar heimshluta!“ segir Heiðveig í færslu sinni.

„Ég fékk bréf nú í dag frá formanni Sjómannafélagsins þar sem hann rak mig úr félaginu á grundvelli samþykktar trúnaðarmannaráðs eftir kröfu fjögurra fulltrúa hins sama ráðs!“



Heiðveig birtir með bréfin sem Sjómannafélagið sendi henni, en þar er hún sögð hafa farið fram gegn félaginu og starfsmönnum þess með „grófum og órökstuddum ásökunum og ærumeiðandi hætti“. Er hún einnig sökuð um að hafa brotið gegn Sjómannafélaginu og hagsmunum þess á aðalfundi félagsins í desember í fyrra.

Deilan hefur snúist um ákvæði í lög­um fé­lags­ins, eins og þau birt­ast á vef þess, þar sem kveðið er á um að þeir ein­ir séu kjörgeng­ir til for­manns sem greitt hafi fé­lags­gjöld und­an­geng­in þrjú ár.

Segir í bréfinu sem Heiðveig fékk sent að enginn fótur hafi verið fyrir tilhæfulausum og ruglingslegum ásökunum hennar.

Eins er hún sögð hafa með „endalausum“ og „ómaklegum“ ásökunum „grafið undan félaginu og starfi þess“, sem og hagsmunum sjómanna á Íslandi. Steininn hafi þó tekið úr í síðustu viku er framferði hennar og árásir hafi leitt til þess að fyrirhuguð sameining Sjómannafélagsins og annarra nafngreindra sjómannafélaga fór út um þúfur.

„Þessi framkoma Heiðveigar í garð félagsins og starfsmanna þess er algjörlega ólíðandi,“ segir í bréfinu. Hún hafi með ósannindum nítt skóinn af félaginu og starfsmönnum þess í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum. „Rótgróið félag eins og Sjómannafélag Íslands hefur ekkert með félagsmann eins og Heiðveigu að gera.“  

Bréfið er undirritað af þeim Arngrími Jónssyni, Steinþóri Hreinssyni, Steinari Dala Haralds og Jóni Hafsteini Ragnarssyni sem leggja til að henni verði vikið úr félaginu og var sú tillaga samþykkt á fundi trúnaðarmannaráðsins 24. október.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert