Landsmenn orðnir rúmlega 355 þúsund

mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Alls bjuggu 355.620 manns á Íslandi, 182.040 karlar og 173.580 konur, í lok september. Landsmönnum fjölgaði um 2.560 á þriðja ársfjórðungi eða um 0,7%. Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 227.030 manns en 128.590 utan þess. Þetta kemur fram í frétt á vef Hagstofu Íslands.

Í lok þriðja ársfjórðungs bjuggu 43.430 erlendir ríkisborgarar á Íslandi eða 12,2% af heildarmannfjölda.

Alls fæddust 1.180 börn á 3. ársfjórðungi en 500 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 1.890 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 280 umfram aðflutta en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 2.170 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu.

Danmörk var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 500 manns á 3. ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 930 íslenskir ríkisborgarar af samtals 1.280. Af þeim 1.440 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 480 manns.

Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (280), Noregi (230) og Svíþjóð (190), samtals 700 manns af 1.000. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 1.140 til landsins af alls 3.610 erlendum innflytjendum. Litháen kom næst, en þaðan fluttust 330 erlendir ríkisborgarar til landsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert