Í beinni: Er gætt að geðheilbrigði?

Málþingið Er gætt að geðheilbrigði? hefst klukkan 14:00.
Málþingið Er gætt að geðheilbrigði? hefst klukkan 14:00. Kristján Þór Árnason

Öryrkjabandalag Íslands heldur í dag málþing þar sem farið er yfir stöðuna á stefnu og aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum sem nú er á miðju tímabili. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra ávarpar fundinn og í framhaldi eru erindi frá sérfræðingum á sviði geðheilbrigðismála sem og aðstandendum og notendum þjónustunnar.

Sýnt er frá fundinum hér að neðan, en hann fer fram á Grand hóteli og hefst klukkan 14. Dagskráin í heild sinni er eftirfarandi:

14:00 Fundarstjóri opnar málþingið - Emil Thóroddsen, formaður málefnahóps ÖBÍ um heilbrigðismál
14:10 Ávarp – Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
14:20 Staða geðheilbrigðismála: Hvar stöndum við og hvert stefnum við? – Ingibjörg Sveinsdóttir, doktor í klínískri sálfræði og sérfræðingur hjá velferðarráðuneytinu
14:50 Sýn notanda – Málfríður Hrund Einarsdóttir, formaður Hugarafls
15.10 Hlé
15:30 Hvað dvelur Orminn langa? Anna Gunnhildur Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Geðhjálpar.
15:50 Gráu svæðin í þjónustu ríkis og sveitarfélaga - Hákon Sigursteinsson, framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkurborgar
16:10 Staða sálfræðiþjónustu hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins - Sólrún Ósk Lárusdóttir, sálfræðingur hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
16:30 Litlir kassar á lækjarbakka - Hilda Jana Gísladóttir, aðstandandi og bæjarfulltrúi
16:50 Samantekt
17:00 Dagskrárlok
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert