Fjölmiðlar fara mannavillt

Karl Gauti Hjaltason.
Karl Gauti Hjaltason. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Fjölmiðlar hafa að ranglega eignað mér setningu úr upptökunni sem svo mjög hefur verið í fréttum að undanförnu. Þar fara þeir einfaldlega mannavillt og vonandi kemst það álíka vel til skila eins og uppslátturinn um það sem ég átti að hafa sagt um Eygló Harðardóttur,“ segir í yfirlýsingu frá Karli Gauta Hjaltasyni alþingismanni.

Bætt við 2. desember klukkan 8:37

Ef þetta er rétt, það er að Stundin hafi birt ranga frétt og lagt Karli Gauta orð í munn, þá biðst mbl.is afsökunar á því að hafa birt frétt byggða á röngum upplýsingum. Fréttin hefur ekki verið leiðrétt á vef Stundarinnar en þar er hægt að hlusta á upptökuna af samtali þingmannanna. 

„Upptakan er afar óskýr en það vefst samt ekki fyrir fjölmiðlum að greina annars vegar hvað er sagt og hins vegar hver talaði. Sjálfur get ég hvorugt eftir að hafa marghlustað á þetta brot úr upptökunni. Ég þekki hins vegar mitt orðfæri og mína rödd. Þessi orð voru ekki mín og sú rödd sem talar er það ekki heldur.

Það er ekki hægt að gera athugasemdir við að fjölmiðlar birti efni úr upptöku af þessu tagi úr því að hún er til. Það er hins vegar mikilvægt að þeir nálgist slíka endursögn af varfærni og lágmarkskrafa er að þeir viti nákvæmlega hver sagði hvað þegar þeir velja sér uppsláttarfyrirsagnir um einstakar setningar.

Mér þykir leitt að hafa setið þennan fund alltof lengi en sjálfur lagði ég ekkert það orð í belg sem talist getur siðferðislega ámælisvert. Ákvörðun stjórnar Flokks fólksins mun engu breyta um áherslur mínar í áframhaldandi störfum mínum sem þingmaður. Ég gaf kjósendum mínum fyrirheit um áherslur og við þau mun ég standa,“ segir ennfremur í yfirlýsingu sem þingmaðurinn hefur sent frá sér.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert