Yfir 800 kerfiskennitölum verið hafnað

Umsóknir um svokallaðar kerfiskennitölur voru talsvert fleiri í ár en …
Umsóknir um svokallaðar kerfiskennitölur voru talsvert fleiri í ár en áður. mbl.is/Golli

Þjóðskrá Íslands hefur hafnað 826 umsóknum um kerfiskennitölur á þessu ári.

Umsóknum hefur fjölgað umtalsvert að því er fram kemur í umsögn Þjóðskrár til þingsins er fjallaði um aðgerðir gegn peningaþvætti.

Í mörgum tilvikum leikur grunur á að fölskum skilríkjum sé framvísað þegar sótt er um kerfiskennitölur vegna viðskipta.

Þjóðskrá hefur hafnað slíkum umsóknum og tilkynnt málin til lögreglu, að því er fram kemur í fréttaskýringu um þetta efni í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert