117% nýting sjúkrarúma

Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans.
Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans. mbl.is/​Hari

„Enn þyngist róðurinn hjá okkur á spítalanum,“ skrifar Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, í pistli á vef sjúkrahússins.  Hann segir að í nýliðinni viku hafi rúmanýtingin náð 117% á bráðalegudeildum en á hefðbundnum bráðasjúkrahúsum sé gert ráð fyrir að hún sé um 85%.

„Við aðstæður sem þessar er augljóst að öryggi sjúklinga er ekki tryggt og því var embætti landlæknis gert grein fyrir stöðunni sem og velferðarráðuneytinu,“ skrifar Páll. Hann segir að landlæknir ásamt starfsfólki hafi heimsótt bráðamóttökuna í Fossvogi og tilteknar bráðalegudeildir. „Ég geri ráð fyrir athugasemdum og ábendingum innan tíðar.“

Hann heldur svo áfram: „Við vinnum sífellt að endurbótum vinnuferla okkar til að auka skilvirkni en það starf getur aðeins skilað takmörkuðum árangri þegar vandinn byggir að stórum hluta á vanda kerfisins utan hans. Þar vísa ég auðvitað til vel þekkts vanda í uppbyggingu þjónustu við aldraða og aðra sem ekki geta búið heima án stuðnings og þarf ekki að rekja það frekar hér. Það er afar mikilvægt að allir geri sér grein fyrir því að þegar svona er komið á aðalsjúkrahúsi landsins, sem hefur á að skipa mestu og bestu þekkingunni í heilbrigðisvísindum í landinu, er ekki verið að nýta þá miklu krafta og fjárfestingu sem hjá spítalanum liggur með réttum hætti. Þjónusta við þá sem á sjúkrahúsið leita er lakari en við viljum fyrir vikið. Á Landspítala er afar hæft starfsfólk, í heimsklassa vil ég leyfa mér að halda fram, sem vill ekkert frekar en að nýta krafta sína til fulls í þau verkefni sem þeim eru ætluð.“ 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert