Bára afhenti Alþingi upptökurnar

Skrifstofa Alþingis hefur fengið afhentar hljóðupptökur af samtali sex þingmanna …
Skrifstofa Alþingis hefur fengið afhentar hljóðupptökur af samtali sex þingmanna á barnum Klaustri í síðasta mánuði. mbl.is/​Hari

Skrifstofa Alþingis er komin með hljóðupptökurnar af samtali þingmannanna sex á barnum Klaustri 20. nóvember síðastliðinn. Stundin greinir frá því að Bára Halldórsdóttir, sem tók upp samtal þingmannanna, hafi afhent Alþingi upptökurnar um helgina.

Þórhallur Vilhjálmsson, forstöðumaður lagaskrifstofu Alþingis, segir í samtali við mbl.is að um sjö hljóðskrár sé að ræða og eru þær alls um þrjár klukkustundir að lengd. Þórhallur segir að málið sé enn á undirbúningsstigi og ekki sé búið að boða þingmenn eða aðra sem tengjast málinu á einhvern hátt, í viðtöl vegna umfjöllunar siðanefndar.

Forsætisnefnd fjallaði í síðustu viku um mál þingmannanna sem viðhöfðu gróft og niðrandi orðalag um samþing­menn sína og minni­hluta­hópa í sam­fé­lag­inu á barnum Klaustri og vísaði því til siðanefndar Alþingis. Þetta er í fyrsta sinn sem nefndin kemur saman frá því að hún var stofnuð í fyrra.

Nefndin er búin að koma saman að minnsta kosti einu sinni frá því málinu var vísað til hennar og sagði Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, formaður nefndarinnar, í samtali við mbl.is fyrir helgi að mikil vinna fari í undirbúning málsins. Auk hennar skipa þau Haf­steinn Þór Hauks­son, dós­ent við laga­deild Há­skóla Íslands, og Sal­vör Nor­dal, doktor í heim­speki og umboðsmaður barna, siðanefnd Alþing­is.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert