Flugmiðaverðið hækkaði um 27%

mbl.is/Eggert

Verð á flugmiða til fjögurra algengra áfangastaða WOW air og Icelandair hækkaði um 27% að meðaltali á tímabilinu 5. nóvember - 14. desember. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Neytendasamtökunum. Þar segir að samtökin fylgist grannt með þróun verðlags í þessum efnum þar sem miklar sviptingar hafi verið á flugmarkaði.

„Tekin voru skjáskot af flugmiðaverði til fjögurra algengra áfangastaða Wow og Icelandair, annars vegar 5. nóvember, eða daginn sem tilkynnt var um mögulegan samruna félaganna og hins vegar 14. desember. Í báðum tilfellum var skoðað lægsta mögulega verð fram og til baka, eins og það birtist á vefnum, óháð farangri, fyrir vikulanga dvöl sem hæfist nákvæmlega mánuði síðar. Verð til þessara fjögurra áfangastaða hækkaði um 27% að meðaltali á tímabilinu, Wow um 39% og Icelandair um 17%. Mest hækkaði verð á flugleiðinni til Parísar, eða um 73% hjá Wow og 24% hjá Icelandair. Þá lækka bæði Wow og Icelandair verð á flugleiðinni til London,“ segir ennfremur.

Tekið er fram að afar erfitt sé að bera saman verð á flugferðum frá einum tíma til annars í þessum efnum. Meðal annars vegna þess að að verð breytist afar hratt og hins vegar vegna þess að illgerlegt sé að bera saman samskonar flug. „Þar kemur til mismunandi framboð og eftirspurn eftir tímabilum, eldsneytisverð, gengisbreytingar, mismunandi þjónusta og farangursheimildir og margt fleira.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert