Persónuafsláttur og skattleysismörk hækka

Fjármálaráðuneytið.
Fjármálaráðuneytið. mbl.is/Golli

Persónuafsláttur einstaklinga verður 677.358 kr. fyrir árið 2019, eða 56.447 kr. á mánuði. Árlegur persónuafsláttur hækkar samkvæmt því um 30.619 kr. milli áranna 2018 og 2019, eða um 2.552 kr. á mánuði. Hækkun persónuafsláttar nemur 4,7%.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu.

Skattleysismörk tekjuskatts og útsvars verða samkvæmt því 159.174 kr. á mánuði að teknu tilliti til 4% lögbundinnar iðgjaldsgreiðslu launþega í lífeyrissjóð samanborið við 151.978 kr. á mánuði árið 2018. Hækkun skattleysismarka milli ára nemur 4,7%.

Þegar tekjur ná skattleysismörkum byrjar launþegi að greiða útsvar til sveitarfélags síns. Launþeginn byrjar hins vegar ekki að greiða tekjuskatt til ríkisins fyrr en tekjur ná 261.329 kr. á mánuði árið 2019, samanborið við 249.514 kr. á mánuði árið 2018.

Í nýsamþykktum lögum um breytingar á tekjuskatti einstaklinga skulu þrepamörk tekjuskatts á árinu 2019 nú uppreiknuð í réttu hlutfalli við hækkun á vísitölu neysluverðs næstliðna tólf mánuði í staðinn fyrir breytingar á launavísitölu. Þrepamörk tekjuskatts verða samkvæmt því við 11.125.045 kr. árstekjur, eða 927.087 kr. á mánuði fyrir næsta ár, að því er segir í tilkynningunni.

Þar er einnig bent á að tryggingagjald lækkar um 0,25 prósentustig um áramótin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert