Hefur ákveðið að áfrýja dómnum

Ólafur segist ætla að áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur.
Ólafur segist ætla að áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur. mbl.is/Ófeigur

Ólafur William Hand, upplýsingafulltrúi Eimskips, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna fjölmiðlaumfjöllunar í dag um dóm sem hann hlaut í héraðsdómi skömmu fyrir jól, en þar var hann sakfelldur fyrir ofbeldi gegn barnsmóður sinni og hlaut tveggja mánaða skilorðsbundinn dóm.

Í yfirlýsingu Ólafs segir að hann telji sig hafa verið ranglega sakfelldan og að hann hafi ákveðið að áfrýja dómnum. Hann segir málið hafa tekið mikið á sig og fjölskyldu sína og gagnrýnir þá ákvörðun lögreglu og ríkissaksóknara að ákæra hvorki barnsmóður hans né sambýlismann hennar fyrir húsbrot né brottnám barns.

Yfirlýsingu Ólafs sem send var fjölmiðlum má lesa í heild sinni hér að neðan:

„Friðhelgi heimilsins rofin.

Barnsmóðir mín og sambýlismaður hennar ruddust inn á heimili mitt þann 16. júlí 2016 þegar barnið var í umgengni hjá mér samkvæmt úrskurði sýslumanns. Hún réðst á mig alveg tryllt eins og fram kemur í gögnum málsins og reyndi ég að verja mig og heimili mitt með að taka utan um hana og leggja í gólfið. Sambýlismaðurinn sló mig þá í bakið.

Barnsmóðir mín tók barnið og fór með það út gegn vilja barnsins eins og fram kemur í vitnisburði ótengds aðila sem stóð fyrir utan heimili mitt.

Rétt er að ég var dæmdur fyrir að reyna að verja mitt heimili en ég tók hana aldrei hálstaki eins og ég var sakfelldur fyrir. Hef ég tekið ákvörðun um að áfrýja þessum dómi.

Mál þetta hefur tekið mikið á mig og mína fjöldskyldu og vekur upp spurningar um hvort að í dómi þessum felist skilaboð um að það sé réttlætanlegt að ráðast inn á heimili fólks og nema barn á brott í skjóli lögreglu. Að mati lögreglu og ríkissaksóknara þá var ekki ástæða til að kæra barnsmóður mína og sambýlismann hennar fyrir húsbrot né brottnám barns með þeim rökum að almannahagsmunir kröfuðust [sic] þess ekki. Dæmi hver fyrir sig.

Ólafur William Hand“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert