Vilja senda braggamál til saksóknara

Vigdís Hauksdóttir ræddi við fjölmiðla í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag.
Vigdís Hauksdóttir ræddi við fjölmiðla í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag. mbl.is/Arnar Þór

Vigdís Hauksdóttir borgarfulltrúi Miðflokksins og Kolbrún Baldursdóttir borgarfulltrúi Flokks fólksins ætla að flytja tillögu um það á næsta fundi borgarstjórnar að skýrslu innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar um framkvæmdirnar við Nauthólsveg 100 verði vísað til héraðssaksóknara til frekari yfirferðar og rannsóknar.

Sjálfstæðisflokkurinn mun styðja þessa tillögu, staðfestir Eyþór Arnalds oddviti flokksins í samtali við mbl.is. Í bókun Vigdísar um málið á borgarráðsfundi í dag kom fram að tillagan væri rökstudd með vísan í 140. og 141. grein almennra hegningarlaga, sem fjalla um skyldur opinberra starfsmanna í störfum sínum.

Hér að neðan má lesa bókun Vigdísar Hauksdóttur, áheyrnarfulltrúa Miðflokksins í borgarráði, í heild sinni.

„Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins lýsir furðu sinni á því að borgarstjóri, borgarritari og borgarlögmaður hafi ekki vikið af fundi undir dagskrárliðunum. Þessir aðilar eru persónur og leikendur þegar kemur að braggamálinu. Kjörnir fulltrúar verða að hafa frelsi til beinna samskipta við skýrsluhöfunda í svo alvarlegum málum án áheyrnar þeirra sem um er fjallað í skýrslunni. Það er mjög nauðsynlegt ekki síst í ljósi þess að mikilvægt er að aðilar geti ekki samræmt framburð sinn eftir því hvernig spurningum borgarfulltrúa og svörum innri endurskoðunar framvindur. 


Hér er upplýst að borgarfulltrúi Miðflokksins og og Flokks fólksins ætla að flytja tillögu á næsta borgarstjórnarfundi, sem haldinn verður þriðjudaginn 15. janúar n.k., um að vísa skýrslu Innri endurskoðunar Reykjavíkur sem ber heitið Nauthólsvegur 100 til héraðssaksóknara til frekari yfirferðar og rannsóknar. Innri endurskoðandi hefur eftirlátið borgarfulltrúum úrvinnslu skýrslunnar og teljum við okkur vera að bregðast ríku eftirlitshlutverki okkar sem kjörinna fulltrúa ef við myndum ekkert aðhafast í kjölfar hennar. Mjög alvarlegar athugasemdir og ábendingar eru í skýrslunni m.a. um alvarleg lögbrot sem of langt mál er að fara yfir í bókun þessari. Rökstyðjum við þessa ákvörðun okkar m.a. á 140 gr. og 141. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sem fjalla skyldur opinberra starfsmanna í störfum sínum.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert