Vonskuveður um hádegi

Kort/Veðurstofa Íslands

Varað er við versnandi veðri um hádegi en þá gengur í suðvestanhvassviðri eða -storm á Suðurlandsundirlendinu um hádegi og með því fylgja öflug él eða slydduél. Að sögn veðurfræðings má búast við því að skyggni og færð geti orðið slæm um tíma á þessu svæði.

„Nú í morgunsárið hefur veður gærkvöldsins gengið niður á öllu landinu og má búast við éljum í flestum landshlutum í dag ásamt kólnandi veðri. 
Helstu tíðindin eru þó að það gengur í suðvestanhvassviðri eða -storm á Suðurlandsundirlendinu um hádegi og með því fylgja öflug él eða slydduél. Útlit er því fyrir að skyggni og færð geti orðið slæm um tíma á þessu svæði og vegfarendur hvattir til að fylgjast með veðurspám sem eru því miður búnar að vera óstöðugar varðandi þetta veður. Það besta við það er þó að það virðist ætla að fara hratt hjá. Í kvöld bætir aðeins í sunnanáttina á NA-landi en lægir þó jafnharðan þegar líður á kvöldið. 

Á morgun stefnir í vestanstrekking SV-lands fyrri hluta dags, en annars hægur vindur og víða éljagangur með frosti um allt land. Á miðvikudag er áfram útlit fyrir rólegt vetrarveður, en á fimmtudag virðist næsta lægð ætla að taka land,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

Spáin næstu daga

Suðlæg eða breytileg átt 5-13 m/s og él, en strekkingur fyrir austan í fyrstu. Kólnandi veður.
Gengur í suðvestanhvassviðri eða -storm á S-landi upp úr hádegi með éljum og síðan slydduéljum um tíma. Dregur úr vindi síðdegis, en allhvöss sunnanátt NA-lands í kvöld og léttir til. Frost 0 til 8 stig síðdegis, kaldast fyrir norðan.
Vestlæg átt 8-15 m/s SV-lands á morgun, annars mun hægari. Víða él, en yfirleitt léttskýjað á NA-verðu landinu. Frost 1 til 10 stig.

Á þriðjudag:
Vestlæg átt 8-15 m/s á V-verðu landinu með éljum. Hægari A-til og yfirleitt léttskýjað, en líkur á éljum við ströndina. Frost 1 til 10 stig. 

Á miðvikudag:
Breytileg átt 3-8 m/s og víða bjart, en stöku él við ströndina. Herðir á frosti. 

Á fimmtudag:
Gengur í allhvassa eða hvassa suðaustanátt, en suðvestanátt um kvöldið. Víða slydda eða snjókoma, en rigning á S-verðu landinu. Hiti nálægt frostmarki fyrir norðan, en upp í 5 stig syðst. 

Á föstudag:
Snýst í ákveðna norðaustanátt með snjókomu, en rofar til sunnan heiða. Kólnandi veður. 

Á laugardag:
Minnkandi norðanátt og stöku él N-til, en bjart sunnan heiða og frost um allt land. 

Á sunnudag:
Útlit fyrir suðaustlæga átt með snjókomu S- og V-lands. Áfram kalt í veðri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert