Lögreglan varar við grýlukertum

Í lögreglusamþykkt segir að eigendum húsa eða umráðamönnum þeirra sé …
Í lögreglusamþykkt segir að eigendum húsa eða umráðamönnum þeirra sé skylt að fjarlægja snó og grýlukerti af húsum sínum sem geta valdið hættu. mbl.is/Kristinn Magnússon

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við grýlukertum en þau er víða að finna þessa dagana. Í færslu á Facebook-síðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir að nokkur hætta geti stafað af grýlukertum og því sé full ástæða til að hvetja vegfarendur til að sýna aðgát, ekki síst á miðborgarsvæðinu. Þetta á einnig við um snjóhengjur sem lafa fram af húsþökum.

Grýlukerti geta verið hættuleg vegfarendum.
Grýlukerti geta verið hættuleg vegfarendum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Eigendur og umráðamenn húsa eru beðnir um að bregðast við en hinum sömu er jafnframt bent á ákvæði í lögreglusamþykkt en þar segir að eiganda eða umráðamanni húss sé skylt að fjarlægja af húsi sínu snjó og grýlukerti, sem fallið geta niður og valdið hættu fyrir vegfarendur.

mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert