Gunnar Bragi og Bergþór aftur á þing í dag

Bergþór Ólason og Gunnar Bragi Sveinsson.
Bergþór Ólason og Gunnar Bragi Sveinsson. Samsett mynd

Þingmenn Miðflokksins, Gunnar Bragi Sveinsson og Bergþór Ólason, taka sæti sín að nýju á Alþingi í dag eftir að hafa verið í leyfi frá þingstörfum í kjölfar birtingar upptaka af samræðum þeirra og fjögurra annarra þingmanna Miðflokks og Flokks fólksins á barnum Klaustri 20. nóvember í fyrra.

Í tölvupósti, sem sendur var öllum félögum í Miðflokknum fyrr í morgun, er greint frá þessari ákvörðun þingmannanna tveggja. Þar segir enn fremur að aðstæður séu þannig að „í ljósi fordæmalausrar aðkomu forseta Alþingis við skipun siðanefndar“ sjái þeir sér ekki annað fært en að taka sæti sín að nýju.

Báðir þingmennirnir tilkynntu í lok nóvember um að þeir hygðust fara í leyfi frá þingstörfum um óákveðinn tíma.

Í tölvupóstinum segir einnig að þingmennirnir hafi, eins og staðan sé nú, ekki lögmætan andmælarétt í sölum Alþingis. „Í ljósi valdníðslu forsetans meta þeir þannig stöðuna að ekki sé um neitt annað að ræða en að grípa til varna,“ segir í póstinum.

Eftirfarandi tilkynningu sendi Bergþór Ólason í tengslum við endurkomu sína á þing:

„Í kjölfar óvarlegra orða minna, ólögmætrar upptöku á þeim, fjölmiðlaumfjöllunar og vandlætingar í samfélaginu tók ég þá ákvörðun að taka mér leyfi frá þingstörfum , íhuga stöðu mína og hvernig ég gæti safnað vopnum mínum, endurheimt traust kjósenda og haldið áfram þeim störfum sem ég var kjörinn til.

Endurmat af þessu tagi þarf sinn tíma og hann ætlaði ég að taka mér. Í ljósi þeirra spjóta sem á mér stóðu strax á fyrstu dögum Alþingis, eftir að það kom saman á nýju ári, tel ég hins vegar óhjákvæmilegt að flýta för minni og taka mér stöðu þar sem ég get í senn varist ágjöfinni og haldið áfram að sinna þeim verkefnum sem mér hefur verið trúað fyrir.

Mikilvægt er að störf Alþingis komist í eðlilegan farveg sem allra fyrst í stað pólitískra hjaðningavíga enda þótt sumum þyki sóknarfæri á þeim vettvangi. Ég mun leggja mitt af mörkum til þess að þingstörfin verði málefnaleg en ekki persónuleg á vikunum og mánuðunum sem framundan eru. Vonandi er að aðrir muni leggja sig fram um slíkt hið sama.“

Eftirfarandi tilkynningu sendi Gunnar Bragi Sveinsson frá sér sömuleiðis:

„Í kjölfar óviðeigandi og særandi orða og ólögmætrar upptöku á þeim þá tók ég þá ákvörðun að taka mér launalaust leyfi frá þingstörfum eftir að hlerunarmálið umtalaða komst í hámæli. Ég vildi skoða hug minn, safna kröftum og ræða síðan við bakland mitt. Ég iðrast og hef beðist fyrirgefningar á orðum mínum og geri það enn á ný.

Ég hef leitað ráðgjafar og um leið notið mikils skilnings og stuðnings ættingja, vina og félaga innan flokks og utan. Þakka ég þeim hvatninguna og traustið.

Miðflokkurinn gaf mér það svigrúm sem ég óskaði eftir og hvorki hvatti mig né latti til að flýta endurkomu minni. Vel má skilja það hlutleysi sem vísbendingu um að hvorki ég né aðrir væru ómissandi fyrir flokkinn og undir það tek ég heilshugar. Ég var á hinn bóginn kosinn til starfa á Alþingi af fjölda fólks og gagnvart því ber ég ríkar skyldur. Þær vildi ég að sjálfsögðu rækja á nýjan leik í fyllingu tímans. Þakka ég þeim fjölmörgu stuðningsmönnum sem hafa sett sig í samband við mig og minnt mig á þessar skyldur mínar og hvatt mig til starfa.

Stundunum eru ákvarðanir nánast teknar fyrir mann. Fremur óvænt – en samt ekki - blasir svarið við því hvenær rétt sé að snúa til baka. Fyrstu dagar þingfunda á nýju ári, og framganga forseta Alþingis að undanförnu, er með þeim hætti að annað er óhjákvæmilegt en að nýta sér allan rétt til þess að vera inni á þeim leikvelli þar sem að mér er sótt og svara fyrir mig á þeim vettvangi en ekki utan hans. Þess vegna mæti ég á nýjan leik til starfa minna á Alþingi í dag.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert