Komst út áður en traktorinn sökk

Ekki urðu slys á fólki, en bóndanum sem var á …
Ekki urðu slys á fólki, en bóndanum sem var á ferð á dráttarvélinni tókst að komast út úr henni áður en hún sökk. Ljósmynd/Björgunarfélagið Blanda

Björgunarfélagið Blanda á Blönduósi sinnti nokkuð óvenjulegu verkefni í gær þegar henni barst útkall um að dráttarvél hefði fallið niður um ís í Laxárvatni. Ekki urðu slys á fólki, en bóndanum sem var á ferð á dráttarvélinni tókst að komast út úr henni áður en hún sökk.

„Fór vaskur hópur félaga með tæki og tól á staðinn til að byrja aðgerðir. Þegar búið var að meta umfang aðgerðarinnar var brugðið á það ráð að fá lánaða beltagröfu sem stóð við Laxárvirkjun,“ segir í færslu á Facebook-síðu björgunarsveitarinnar sem þakkar Steypustöð Skagafjarðar kærlega fyrir lánið á vélinni.

„Án hennar hefði aðgerðin tekið mikið lengri tíma með keðjusögum o.fl. Þetta fór allt eins vel og það gat farið og er dráttarvélin nú komin inn á verkstæði í afvötnun og þurrkun.“

Unnið að því að koma dráttarvélinni aftur á þurrt land.
Unnið að því að koma dráttarvélinni aftur á þurrt land. Ljósmynd/Björgunarfélagið Blanda
Brugðið á það ráð að fá lánaða beltagröfu sem stóð …
Brugðið á það ráð að fá lánaða beltagröfu sem stóð við Laxárvirkjun. Ljósmynd/Björgunarfélagið Blanda
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert