Gervigreind verði notuð til að selja fisk

Liðið gat fagnað sigrinum í keppninni á laugardaginn.
Liðið gat fagnað sigrinum í keppninni á laugardaginn. Ljósmynd/HR

Sigurlið Hnakkaþonsins í ár leggur til að Icelandic Seafood selji íslenskan fisk beint til ungra bandarískra neytenda undir eigin vörumerki, Coot, sem leggi áherslu á hreinleika, sjálfbærni og íslenskan uppruna. Með hjálp gervigreindar megi sérsníða markaðsskilaboð og auglýsingar að smekk og þörfum hvers neytanda.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Háskólanum í Reykjavík, en Hnakkaþonið svonefnda er samkeppni á vegum skólans og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, þar sem lið keppast um að móta lausnir fyrir verkefni sem tengjast íslenskum sjávarútvegi.

Sigurliðið, sem ber nafnið „Coot – What a catch!“, bendir sérstaklega á vænlegan markhóp í Seattle í Washington, en þar sé margt ungt fólk með góðar tekjur sem sé reiðubúið að greiða hærra verð fyrir matvörur í háum gæðaflokki.

Úrslit Hnakkaþonsins 2019 voru kynnt í Háskólanum í Reykjavík á laugardaginn.

Hópurinn mun heimsækja Seafood Expo North America í mars.
Hópurinn mun heimsækja Seafood Expo North America í mars. Ljósmynd/HR

Sigurliðið skipa: Anton Björn Sigmarsson, nemi í hátækniverkfræði, Serge Nengali Kumakamba, meistaranemi í lögfræði, Gabríela Jóna Ólafsdóttir, nemi í tölvunarfræði með viðskiptafræði sem aukagrein, Lísa Rán Arnórsdóttir rekstrarverkfræðinemi og Sólrún Ásta Björnsdóttir tölvunarfræðinemi.

Hugmynd hópsins að pakkningu utan um útflutta ýsu.
Hugmynd hópsins að pakkningu utan um útflutta ýsu.

Samstarfsfyrirtæki keppninnar í ár var Iceland Seafood International sem selur, framleiðir og markaðssetur sjávarafurðir um allan heim. Nemendur þurftu að nýta þekkingu sína á markaðsmálum og áætlanagerð og setja fram áætlun um markaðssetningu á fiski til afmarkaðs neytendahóps að eigin vali og líta til framtíðar í lausnum sínum.

Liðin fengu verkefnið í hendur á fimmtudaginn og kynntu lausnir sínar fyrir dómnefnd á hádegi á laugardaginn. Dómnefndina skipuðu Ari Kristinn Jónsson, rektor HR, Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS, Helgi Anton Eiríksson, forstjóri Iceland Seafood International, Gunnar Már Sigurfinnsson, framkvæmdastjóri Icelandair Cargo, og Valdimar Sigurðsson, prófessor við viðskiptadeild HR. 

Sigurliðið mun heimsækja Seafood Expo North America, stærstu sjávarútvegssýningu Norður-Ameríku í Boston í mars, í boði Icelandair Group og sendiráðs Bandaríkjanna á Íslandi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert