Jens Garðar nýr framkvæmdastjóri Laxa

Jens Garðar Helgason.
Jens Garðar Helgason. mbl.is/Árni Sæberg

Stjórn Laxa fiskeldis hefur ráðið Jens Garðar Helgason í starf framkvæmdastjóra félagsins og mun hann hefja störf um mánaðamótin.

Greint er frá þessu í tilkynningu frá laxeldisfyrirtækinu. Jens Garðar hefur verið formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi frá stofnun þeirra árið 2014 og var framkvæmdastjóri útflutningsfyrirtækisins Fiskimiða ehf. á árunum 2002 til 2018.

Jens Garðar stundaði nám í viðskiptafræði við Háskóla Íslands á árunum 1997 – 2000 og stundar MBA-nám í Seafood Management við Norwegian School of Economics. Jens Garðar er búsettur á Eskifirði, hann á þrjú börn og sambýliskona hans er Kristín Lilja Eyglóardóttir.

Laxar fiskeldi er með þrjár starfsstöðvar á Suðurlandi, sjókvíaeldi í Reyðarfirði og höfuðstöðvar á höfuðborgarsvæðinu. Starfsemi og umsvif Laxa fiskeldis eru sögð hafa aukist hratt á síðustu misserum og er fyrirtækið nú að ala fjórar kynslóðir laxa í starfsstöðvum sínum. Starfsmenn Laxa fiskeldis á Íslandi eru 35.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert