240 þúsund króna sekt fyrir hraðakstur

Frá Reykjanesbrautinni.
Frá Reykjanesbrautinni. mbl.is/Árni Sæberg

Lögreglan á Suðurnesjum hefur kært ellefu ökumenn fyrir of hraðan akstur á undanförnum dögum. Sá sem hraðast ók mældist á 164 km hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Samkvæmt dagbók lögreglunnar var þarna á ferðinni erlendur ferðamaður sem gat ekki greitt sektina á staðnum. Sektarupphæð vegna brots af þessu tagi nemur 240 þúsund krónum.  

Þá voru allmargir ökumenn sektaðir fyrir að tala í síma án handfrjáls búnaðar meðan á akstri stóð og skráningarnúmer voru fjarlægð af fáeinum bifreiðum sem voru óskoðaðar eða ótryggðar í umferðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert