Skoði áhrif starfsaldurs og menntunar

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra skipaði nefndina í kjölfar fundar stjórnvalda og …
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra skipaði nefndina í kjölfar fundar stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins um launatölfræði 19. janúar 2018. mbl.is/​Hari

Taka ætti upp sambærilegan vettvang samráðs milli aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda í aðdraganda kjarasamninga og tíðkast í Noregi samkvæmt niðurstöðum nefndar um bætur á úrvinnslu og nýtingu tölfræðiupplýsinga. Nefndin hefur skilað skýrslu sinni og var hún kynnt á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun.

Þá er í skýrslunni lagt til að komið verði á heildarsöfnun launaupplýsinga beint frá launagreiðendum. Nefndin leggur þó áherslu á að einnig er mikilvægt að efla núverandi launarannsókn samhliða heildargagnasöfnun til að áhætta við breytta gagnasöfnun sé viðunandi og unnt verði að brúa bilið milli ólíkra gagna og tímaraða.

Skoði áhrif starfsaldurs og menntunar

Nefndin beinir því einnig til Hagstofunnar að skoðað verði hvernig launavísitalan endurspegli hækkandi starfsaldur og aukna menntun. Niðurstöður greiningarinnar verði birtar opinberlega og brugðist við ef þær leiða í ljós bjögun á launavísitölunni.

Í tilkynningu frá stjórnarráðinu er haft eftir Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra að hún telji skýrsluna mikilvægt framlag til þeirrar vinnu sem eigi sér nú stað á vettvangi stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins. „Bætt launatölfræði er meðal atriða sem ég hef lagt ríka áherslu á að verði bætt til frambúðar og ég fagna sérstaklega tillögu nefndarinnar um stofnun kjaratölfræðinefndar, sem er vettvangur aðila í aðdraganda kjarasamninga líkt og tíðkast m.a. í Noregi,” er haft eftir Katrínu.

Í Noregi starfar nefnd um tölfræðilegar undirstöður kjarasamninga (TBU), þar sem fulltrúar heildarsamtaka á vinnumarkaði, stjórnvalda og hagstofunnar starfa saman og birta töluleg gögn til undirbúnings kjarasamningum og tryggja með því samræmdan skilning á þeim hagtölum sem liggja til grundvallar. Sambærileg samráðsnefnd á Íslandi myndi skapa vettvang fyrir samræður um forsendur í aðdraganda kjarasamninga, jafnt launatölfræði sem aðrar hagtölur, og auka traust milli aðila. Markmiðið er að tryggja sameiginlega sýn aðila á stöðu og þróun launa og efnahagsmála og ýta undir það að tekist sé á um efnisatriði frekar en tölfræðilegar aðferðir eða niðurstöður.

Nefndin var skipuð fulltrúum frá forsætisráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti, velferðarráðuneyti, heildarsamtökum á vinnumarkaði, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, ríkissáttasemjara og Hagstofu Íslands.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert