Skora á stjórnvöld að hefja undirbúning Tröllaskagaganga

Bæjarstjórn Akureyrar og sveitarstjórn Skagafjarðar vilja jarðgöng undir Tröllaskaga.
Bæjarstjórn Akureyrar og sveitarstjórn Skagafjarðar vilja jarðgöng undir Tröllaskaga. mbl.is/Þorgeir

Bæjarstjórn Akureyrar og sveitarstjórn Skagafjarðar samþykktu á fundum sínum nú vikunni áskorun til stjórnvalda um að tryggja í nýrri samgönguáætlun fjármögnun grunnrannsókna og samanburðar á bestu kostum á legu mögulegra jarðganga undir Tröllaskaga, auk rannsókna á samfélags- og efnahagslegum áhrifum sem leiða slíkum  göngum.

„Tröllaskagagöng munu ótvírætt hafa mikinn ávinning í för með sér í formi styttingar vegalengda á milli allra stærstu þéttbýlisstaða á Norðurlandi, aukins öryggis vegfarenda þar sem ný leið sem sneiðir fram hjá hæstu fjallvegum yrði til, stækkunar vinnusóknarsvæða, styrkingar almennrar þjónustu og eflingar ferðaþjónustu auk bættrar samkeppnisstöðu landshlutans. Slík jarðgöng myndu breyta svo miklu á svo stóru svæði að örðugt er að sjá áhrifin fyrir án ítarlegrar og faglegrar athugunar.

Bæjarstjórn Akureyrar leggur þunga áhersla á að nauðsynlegur undirbúningur og frumrannsóknir vegna nýrra Tröllaskagaganga hljóti fjármögnun innan nýrrar samgönguáætlunar,“ segir í áskorun bæjarstjórnar Akureyrar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert