Samtök stofnuð vegna sósíalískra afla

Frá stofnfundi samtakanna á Kringlukránni í gær.
Frá stofnfundi samtakanna á Kringlukránni í gær. Ljósmynd/Aðsend

Samtök frjálslyndra háskólanema voru stofnuð á Kringlukránni í gær. Samtökin eru stofnuð til að breiða út hugmyndafræði frjálshyggjunnar en háskólanemar sem styðja þá hugmyndafræði er ört vaxandi hópur, segir í tilkynningu frá samtökunum.

„Vegna rísandi sósíalískra afla í samfélaginu sjáum við ríka ástæðu fyrir því að stofna samtökin,“ segir m.a. í tilkynningunni sem segir að stefna félagsins sé að mennta, styrkja og fræða frelsisþenkjandi einstaklinga.

Ríkisvaldið ekki best tilfallið að leysa öll vandamál

„Á tímum sem þessum er mikilvægt að þeir sem trúa á framtak einstaklingsins til athafna komi saman, ræði ólíkar hugmyndir og ekki síst lausnir við þeim vandamálum sem samfélagið kann að standa frammi fyrir á hverjum tíma. Ríkisvaldið er ekki best tilfallið, til að leysa öll vandamál samfélagsins,“ segir í tilkynningunni.

Davíð Snær Jónsson, fyrrverandi formaður SÍF, mun veita samtökunum formennsku.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert