Ákvörðun um friðun Víkurgarðs kynnt í dag

Hótel á að rísa á Landssímareitnum sem áður hýsti Víkurgarð.
Hótel á að rísa á Landssímareitnum sem áður hýsti Víkurgarð. mbl.is/​Hari

Félagssamtökin Verndum Víkurgarð, sem berjast fyrir friðlýsingu Víkurkirkjugarðsins í miðbæ Reykjavíkur, komu saman í Iðnó á laugardaginn og hvöttu Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, til þess að ljúka friðlýsingu garðsins að austustu mörkum hans eins og þau voru skilgreind árið 1838.

Í viðtali í Silfrinu í gær lýsti Lilja því yfir að hún myndi kynna ákvörðun sína um friðlýsingu Víkurgarðsins síðdegis í dag og myndi fara eftir lögum um minjavernd. Harðvítugar deilur eru um framtíð svæðisins vegna byggingar hótels við hliðina á Fógetagarðinum þar sem Landsímahúsið stóð áður.

„Þetta er einn helgasti staður landsins, það er enginn vafi í mínum huga,“ sagði Lilja í viðtalinu. „En við erum auðvitað að fara yfir sjónarmið í þessu máli.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert