Ólafur og Karl Gauti í Miðflokkinn

Karl Gauti Hjaltason og Ólafur Ísleifsson.
Karl Gauti Hjaltason og Ólafur Ísleifsson. Samsett mynd

Ólafur Ísleifsson og Karl Gauti Hjaltason hafa ákveðið að ganga til liðs við Miðflokkinn frá og með deginum í dag. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Ólafi og Karli.

Ólafur og Karl voru kjörnir á þing fyrir Flokk fólksins í alþingiskosningunum 2017 en voru reknir úr flokknum eftir að samræður sem þeir tóku þátt í á Klaustur bar í lok nóvember voru gerðar opinberar.

„Áherslur okkar hafa birst í eindregnum stuðningi við láglaunafólk og þá sem standa höllum fæti í íslensku samfélagi og þar eigum við samleið með Miðflokknum. Við erum sammála um nauðsyn þess að leiðrétta kjör hinna lægst launuðu og skapa öldruðum og öryrkjum tækifæri til að bæta hag sinn með aukinni vinnu án skerðingar almannatryggingabóta,“ kemur fram í fréttatilkynningunni.

Þeir segjast vera sammála um mikilvægi réttarríkisins, mannréttinda og að standa gegn hvers kyns valdníðslu. Þeir vilji stórátak í samgöngumálum og styðja við sóknarfæri í hinum dreifðu byggðum landsins. 

 „Á vettvangi Miðflokksins teljum við okkur geta náð betri árangri í baráttumálum okkar og styrkt málefnastöðu flokksins. Við höfum sameiginlega sýn á sjálfstæði og fullveldi þjóðarinnar, yfirráð hennar á auðlindum sínum og mikilvægi vestrænnar samvinnu,“ segir í tilkynningunni.

Ólafur og Karl telja að á vettvangi Miðflokksins styrki þeir stöðu sína á Alþingi til að knýja á um framgang þeirra málefna sem kjósendur treystu þeim fyrir í síðustu kosningum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert