Þóttist vera lögga og handtók mann

Maðurinn var handtekinn við komuna á lögreglustöðina við Hverfisgötu.
Maðurinn var handtekinn við komuna á lögreglustöðina við Hverfisgötu. mbl.is/Golli

Héraðssaksóknari hefur ákært karlmann á fertugsaldri fyrir brot gegn valdstjórninni, ólögmæta nauðung og gripdeild. Hann þóttist vera lögreglumaður og framkvæmdi leit á starfsmönnum hótels í miðbæ Reykjavíkur undir því yfirskini.

Atvikið átti sér stað í mars fyrir þremur árum en maðurinn kynnti sig sem lögreglumann fyrir starfsmönnum hótelsins og sýndi þeim skilríki með lögreglustjörnu og númeri. 

Fram kemur í ákæru að maðurinn hafi framkvæmt leit á þeim með því að þreifa á þeim og fara í vasa þeirra og taka þaðan tóbak. Að því loknu dró hann starfsmann hótels með sér á lögreglustöðina við Hverfisgötu.

Þegar þangað var komið var maðurinn sem þóttist vera lögreglumaður handtekinn. 

Í ákæru segir að með háttsemi sinni hafi ákærði tekið sér lögregluvald, sem hann hafði ekki, notað í þeim tilgangi heimatilbúin lögregluskilríki sem voru áþekk lögregluskilríkjum og beitt mann ólögmætri nauðung.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert