Hyggjast gista á Austurvelli

Frá mótmælunum á Austurvelli í dag. Þau standa enn yfir …
Frá mótmælunum á Austurvelli í dag. Þau standa enn yfir og mótmælendur ætla að gista á Austurvelli. mbl.is/Eggert

Mótmælendur úr röðum umsækjenda um alþjóðlega vernd og stuðningsmanna þeirra ætla að gista á Austurvelli í nótt, en þar hafa mótmæli þeirra staðið yfir frá því kl. 17 í dag.

„Að sofa í kulda á Austurvelli er mun betra en Ásbrú,“ segir í færslu á Facebook-síðunni „Refugees in Iceland“. Þar er óskað eftir teppum, tjöldum og dýnum, frá þeim sem vilji sýna mótmælendum stuðning.

Mótmælendur fara fram á að brott­vís­un­um hæl­is­leit­enda verði hætt, að all­ir hæl­is­leit­end­ur fái efn­is­meðferð hér á landi og að Dyfl­inn­ar­reglu­gerðin sé ekki notuð, að hæl­is­leit­end­ur fái rétt til að vinna og njóti jafns aðgangs að heil­brigðisþjón­ustu, auk þess sem dvalarstað hælisleitanda á Ásbrú verði lokað.

Myndskeiðið hér að neðan var tekið á ellefta tímanum í kvöld, og þar sést að þó nokkur fjöldi mótmælenda er fyrir framan Alþingishúsið.

Hátt í 200 manns söfnuðust saman á Austurvelli í dag hælisleitendum til stuðnings, þegar mest var, og fór allt friðsamlega fram eftir því sem mbl.is kemst næst. Um er að ræða fimmtu mótmæli hópsins á skömmum tíma.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert