Fleiri mál bíða úrskurðar MDE

Vilhjálmur H. Vilhjálmsson í Landsrétti.
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson í Landsrétti. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Ég tel niðurstöðuna tala algjörlega sínu máli,“ segir Vilhjálmur H. Vilhjálmsson lögmaður um dóm Mannréttindadómstóls Evrópu sem kveðinn var upp í gær sem úrskurðaði að dómaraskipun Sigríðar Á. Andersen dómsmálaráðherra í Landsrétt hafi brotið gegn mannréttindasáttmálanum.

Vilhjálmur er verjandi manns sem stefnt hafði verið fyrir Landsrétt. Hann taldi að seta Arnfríðar Ein­ars­dótt­ur í Lands­rétti hefði verið brot á lög­um mann­rétt­inda­sátt­mál­ans vegna skip­un­ar dóms­málaráðherra á Arn­fríði og þrem­ur öðrum dóm­ur­um í Lands­rétt, en hæfn­is­nefnd taldi aðra hæf­ari og voru lög því brot­in við skip­un­ina.

Hæstirétt­ur taldi setu Arn­fríðar ekki and­stæða lög­um og var því óskað eft­ir því að Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evr­ópu tæki málið fyr­ir. Úrskurðurinn í gær sagði að dómaraskipunin hefði verið brot á sjöttu grein mannréttindasáttmálans sem fjall­ar um rétt ein­stak­linga til rétt­látr­ar málsmeðferðar fyr­ir dómi.

Vilhjálmur staðfesti við mbl.is að hann hafi þegar skotið ellefu öðrum málum til Mannréttindadómstólsins. Eiga þau öll sameiginlegt að hafa verið á borði þeirra dómara sem voru ekki á meðal 15 hæfustu að mati hæfnisnefndar við skipun dómara í Landsrétt.

Málin voru þegar komin á borð Mannréttindadómstólsins áður en dómurinn var kveðinn upp í gær. Hann segir að dómurinn í gær verði fordæmisgefandi fyrir þau mál sem á eftir koma.

Vilhjálmur vill annars ekki tjá sig efnilega um niðurstöðu dómsins í gær og segist taka undir allan þann rökstuðning sem niðurstöður í dómi Mannréttindadómstólsins setja fram.

„Ég lýsi yfir ánægju minni með það hversu hratt og örugglega dómstóllinn leysti úr þessu máli. Það sýnir að um virkt réttarúrræði er að ræða sem ber að nota í viðamiklum málum,“ segir Vilhjálmur H. Vilhjálmsson.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert