Reynt til þrautar í viðræðum í kvöld

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR. mbl.is/​Hari

„Við erum enn þá að funda,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, í samtali við mbl.is nú á níunda tímanum í kvöld.

Fundur hefur staðið hjá ríkissáttasemjara í allan dag. Ragnar gat ekki tjáð sig neitt efnislega um viðræðurnar en sagði að mjög erfitt væri að meta stöðuna.

„Það hlýtur að gefa auga leið að við værum löngu hætt þessu ef ekki væri verið að reyna til þrautar,“ segir Ragnar. Óvíst er hversu lengi viðræður munu standa fram á kvöld, en þær munu halda áfram.

„Á meðan eitthvað er til að tala um þá höldum við áfram, þangað til annað kemur í ljós. Ég veit ekkert hvað ég verð lengi hérna,“ sagði Ragnar Þór Ingólfsson við mbl.is.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert